Hvað þú getur gert í lífsverndar baráttunni
- Biðjið daglega fyrir endalokum
fóstureyðinga, konum sem hafa farið í
fóstureyðingu, læknum,
stjórnmálamönnum, prestum og þeim sem vinna
í lífsverndarhreyfingum, og líka þeim sem
átta sig ekki á hversu röng fóstureyðing
er. Myndið lífsverndar bænahópa eða
bænahópa á heimilum eða í sóknum.
ættleiðið andlega ófætt barn, biðjið
fyrir henni/honum. Gerið einhverja föstu og yfirbót.
- Gangið með “Dýrmætu Fætur” barmmerkið.
(Dýrmætu Fætur barmmerki eru til hjá Lífsvernd. Hafðu samband ef þig vantar)
- Notið lífsvernar
umslög, bílrúðu-límmiða, boli,
spjöld, afmæliskort og svo framvegis. Setjið spjöld
og lesefni á almenn tilkynningarborð í
matvörubúðum og öðrum stöðum.
(Límmiðar á afturrúðu bíla eru til hjá Lífsvernd. Hafðu samband ef þig vantar.)
- Skipuleggið göngur,
bænastundir, afhendingu lesefnis,
mótmælastöður og
gangstéttarráðgjöf.
- Sendið bréf til
dagblaða, stjórnmálamanna og annars fólks
eða stofnanna og útgáfufyrirtækja.
- Bókið messur sem lesnar eru fyrir endalokum fóstureyðinga.
- Komist að hvort
frambjóðendur til stjónmálaembætta
styðja fóstureyðingar og segið öðrum
frá. Sendið stjórnmálamönnum bréf.
Kjósið á þann hátt að það
muni hjálpa lífsverndarsjónarmiðum.
- Kaupið auglýsingar í
símaskránni og annars staðar til að dreifa
lífsverndar boðskapnum.
- Gefið lífsverndarbækur
í bókasafnið í þínu hverfi,
skóla og kirkju. Biðjið um slíkar bækur
í bókasöfnum og bókabúðum.
- Mælið með ættleiðingum.
- Komið upp minningarsteini fyrir ófædda í kirkjugarði eða við kirkju.
- Mælið með
ræðumönnum fyrir aðra hópa og
bjóðið þeim til þíns félags.
- Notið internetið til að
dreifa boðskapnum. Notið lífsverndarskilboð sem
undirskrift í tölvupóst sem þú sendir.
Sendið lífsverndarskilaboð. Skoðið og
lærið af lífsverndar vefsíðum. Komið
upp lífsverndar vefsíðu.
- Ef þið hafið fleiri
hugmyndir, ekki halda þeim bara fyrir ykkur! Og ef ykkur finnst
þið ekki geta framkvæmt þær, komið
þeim áfram til einhvers sem getur það.
Ofangreint er úrdráttur úr þessari síðu hjá Priests for Life
Til viðbótar: - Gerist félagar í LÍFSVERND! Sjá hér.
- Bjóðið öðrum
að gerast félagar í Lífsvernd! Gott er að
miða við að bjóða einhverjum í hverjum
mánuði að gerast félagi.
- Biðjið bænar Lífsverndar daglega. Sjá hér.
-
Takið þátt í mánaðarlegri
bænastund fyrir ófæddum börnum sem er haldin
í Maríukirkju í Breiðholti fyrsta
mánudag hvers mánaðar kl. 19.00 til 20.00
