Ritningarlestrar fyrir Sunnudagsmessu
2. sunnudagur, ár A
Fyrsti ritningarlestur:
JesajaHann sagði við mig: "Þú ert þjónn minn, Ísrael, sá er ég mun sýna á vegsemd mína." En nú segir Drottinn, hann sem myndaði mig allt í frá móðurlífi til að vera þjón sinn, til þess að ég sneri Jakob aftur til hans og til þess að Ísrael yrði safnað saman til hans, - og ég er dýrmætur í augum Drottins og Guð minn varð minn styrkur - nú segir hann: "Það er of lítið fyrir þig að vera þjónn minn, til þess að endurreisa ættkvíslir Jakobs og leiða heim aftur þá, er varðveitst hafa af Ísrael. Fyrir því gjöri ég þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálpræði til endimarka jarðarinnar."
Sálmur:
Ég hefi sett alla von mína á Drottin, og hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt. Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það og óttast og treysta Drottni. Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, - þú hefir gefið mér opin eyru - brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi. Þá mælti ég: "Sjá, ég kem, í bókrollunni eru mér reglur settar. Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér." Ég hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ég hefi eigi haldið vörunum aftur, það veist þú, Drottinn!
Síðari ritningarlestur:
Fyrra bréf Páls til KorintumannaPáll, kallaður að Guðs vilja til að vera postuli Jesú Krists, og Sósþenes, bróðir vor, heilsa söfnuði Guðs í Korintu, þeim sem helgaðir eru í Kristi Jesú, heilagir að köllun til, ásamt öllum þeim, sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists, sem er þeirra Drottinn og vor. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Guðspjall:
JóhannesarguðspjallDaginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: "Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins. Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég. Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael." Og Jóhannes vitnaði: "Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum. Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda. Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs."