Bjarga “Dýrmætir Fætur” lífum? Svo sannarlega!
Þessar sögur voru sendar Heritage House, sem framleiða “Dýrmætu Fæturna”
Frá Kathy í Phoenix, AZ
“Ég er ákaflega glöð að hafa fengið
tækifæri til að fræðast um hina
“Dýrmætu Fætur”. Ég er 16 ára
gömul. Dag einn var ég stödd á
bókasafninu og sá þá stúlku sem bar
þetta sæta barmmerki. Merkið sýndi tvo
barnsfætur. Ég varð forvitin og spurði
stúlkuna um merkið. Hún sagði mér hvað
það táknaði. Þetta snerti mig svo
djúpt og stúlkan var svo sæt. Ég var jafnvel
sjálf að hugsa um að láta eyða fóstri
en nú ætla ég ekki að láta gera
það. Ég ætla að eignast barnið og gefa
það til ættleiðingar. Því miður
get ég ekki haldið því …, en ég veit
að þetta verður barninu fyrir bestu. Mér finnst
eins og það hafi verið eins konar innblástur
að ég skyldi hafa verið stödd á
bókasafninu þennan dag”
Frá Ray í Springfield, MO
“Nýlega gaf vinkona okkar ógiftri og barnshafandi
stúlku, sem hún þekkti, barmmerkið sem
sýnir hina “Dýrmætu Fætur”.
Fóstureyðing var í undirbúningi og var
stúlkan undir þrýstingi að fylgja þeirri
áætlun. Eftir að hafa séð “Fæturna”,
gat hún ekki trúað því. Þetta
venjulega: “Þetta getur ekki verið satt! og “Ég
trúi þessu ekki” leiddi til frekari rannsókna og
athugana á því hvað gerist í raun og
veru þegar fóstri er eytt. Með öðrum
orðum – mannslífi var bjargað!”
Frá Evelyn in Birch Run, MI
“Ein af dætrum vinnufélaga míns sendi
mér yndislegt þakkarbréf vegna hinna
“Dýrmætu Fóta” sem ég hafði sent henni.
Það sem snerti mig þó mest var að heyra hana
segja frá vinkonu hennar, sem var á
menntaskólaaldri. Vinkonan hafði komist að
því að hún var ófrísk.
Þegar hún sá “Fæturna” ákvað
hún að láta ekki eyða fóstrinu.”
Frá Jeanne í Washington, DC
“Fyrsta morguninn sem ég tók hina
“Dýrmætu Fætur” með mér á
fóstureyðingarstöð, kom 19 ára gömul
stúlka til þess að láta eyða fóstri.
Stúlka þessi var ólétt í annað
sinn.. Mér tókst að fá hana til að staldra
við og tala við mig eftir að hafa sýnt henni
“Dýrmætu Fæturna”. Við gengum fyrir hornið
til þess að fá okkur kaffibolla og rabba saman.
Klukkustund síðar var stúlkan á leið heim
eftir að hafa ákveðið að fara ekki í
fóstureyðingu. Barnið hennar fæddist snemma
í júní.”
Frá Mary Lynn í Buffalo, NY
“Ég stóð fyrir framan
fóstureyðingastöð þar sem ég
ráðgaðist við kæran vin minn. Ég
heilsaði ungri konu, sem var á leið í
fóstureyðingu, með því að segja
hressilega: góðan daginn! Þá benti ég
á barmmerkið mitt “Dýrmætir Fætur”, sem
ég bar á kragahorninu og sagði: “Sjáðu,
þessir fætur eru nákvæm eftirmynd,
bæði stærð og lögun, tíu vikna gamals
fósturs.” Konan tók andköf, bar höndina upp
að munninum og stundi. Svo hljóp hún inn í
fóstureyðingastöðina en ég brotnaði
algjörlega niður. Vinur minn kallaði á mig og
sagði: “Lynn, Lynn, sjáðu!” Þegar ég leit
upp sá ég þessa fallegu ungu konu yfirgefa
fóstureyðingastöðina, setjast inn í
bílinn með kærasta sínum og fara burt.
Þegar hún fór fram hjá okkur, veifaði
hún með gleðitár á kinn, og gaf þar
með til kynna að lífi barnsins hennar hefði
verið bjargað.”
Frá Terry í Atlanta, GA
“… Sjálfboðaliði okkar talaði við
báðar stúlkurnar en við óttuðumst
að þær myndu láta eyða fóstrum
sínum. Þegar hún var í þann mund
að fara, mundi hún eftir “Dýrmætu
Fótunum” á kraga sínum og gaf annari
stúlkunni þá. Hún sagði henni að
þetta væru “nákvæm stærð og
lögun á 10 vikna gömlu fóstri (en það
var einmitt aldurinn á hennar eigin fóstri). Jæja,
sjálfboðaliðinn okkar kom til baka og við
báðum saman, en hinir “Dýrmætu Fætur”
höfðu gert sitt – þarna tókst okkur að
bjarga, ekki bara einu barni, heldur tveimur börnum. Við
þökkum fyrir að gera hina “Dýrmætu
Fætur” aðgengilega fyrir okkur”.
Þessar frásagnir eru þýðingar af þessari síðu: http://www.crusadeforlife.org/cbl/crusadeforlife/precious_feet.htm
